Sending eða sótt í verslun
Sending eða sótt í verslun
Pantarnir eru sendar með Dropp og afhending tekur að jafnaði 1–3 virka daga. Einnig er hægt að sækja pöntun í Háholt 14. Við látum þig vita þegar pöntunin er tilbúin.
Medicube
Medicube One Day Exosome Shot Pore Ampoule 2000 – 30 ml
Medicube One Day Exosome Shot Pore Ampoule 2000 – 30 ml
Gat ekki hlaðið inn möguleikum að sækja
Vörulýsing
Medicube One Day Exosome Shot Pore Ampoule 2000 er öflugt en létt serum sem er sérstaklega þróað fyrir sýnilegar svitaholur, ójafna húðáferð og fitumyndun.
Formúlan inniheldur 2.000 ppm af Lacto Exosome ásamt örfínum spicule-ögnum sem veita húðinni einkennandi náladofatilfinningu við notkun. Serumið inniheldur einnig níasínamíð, panthenól og mildar AHA-, BHA- og PHA-sýrur sem hjálpa til við að fjarlægja dauðar húðfrumur og styðja við sléttari og jafnari ásýnd.
Helstu eiginleikar
- Hjálpar til við að minnka ásýnd sýnilegra svitahola
- Styður við sléttari og jafnari húðáferð
- Hjálpar til við að halda fitumyndun í jafnvægi
- Fjarlægir dauðar húðfrumur með mildri sýrusamsetningu
- Hjálpar til við að styrkja náttúrulega húðhindrun
- Gefur daufri húð aukinn ljóma
- 2.000 ppm styrkleiki sem hentar vel byrjendum
Lykilinnihaldsefni
- Lacto Exosome: Utanfrumubólur úr Lactobacillus sem styðja við heilbrigðara og jafnara yfirbragð húðarinnar.
- Spicule-öragnir: Örfínar, nálarlaga agnir sem skapa einkennandi náladofatilfinningu og styðja við virkni húðumhirðunnar.
- Níasínamíð: Hjálpar til við að jafna húðlit og styrkja húðhindrunina.
- AHA, BHA og PHA: Hjálpa til við að fjarlægja dauðar húðfrumur og bæta ásýnd svitahola og ójafnrar áferðar.
- Panthenól: Veitir raka og hjálpar til við að róa húðina.
- Adenósín: Styður við sléttari og mýkri ásýnd.
Notkun
Berið serumið á hreina húð og forðist augn- og varasvæði. Fyrir bestan árangur má nota það sem fyrsta skref húðumhirðunnar eftir hreinsun eða eftir rakagefandi andlitsvatn.
Nuddið og þrýstið seruminu varlega inn í húðina með fingurgómunum. Ljúkið rútínunni með rakagefandi, vatnsbundnu kremi, til dæmis Medicube Collagen Jelly Cream.
Byrjið með notkun 2–3 sinnum í viku ef húðin er viðkvæm eða óvön spicule-vörum. Auka má tíðnina smám saman eftir viðbrögðum húðarinnar.
Athugið
Náladofi, vægur hiti eða tímabundinn roði getur komið fram við notkun vegna spicule-agnanna. Stillið magn og tíðni eftir næmni húðarinnar.
Framkvæmið húðpróf fyrir fyrstu notkun. Notið ekki á skaddaða eða mjög erta húð og forðist augn- og varasvæði. Byrjendum er ekki ráðlagt að nota serumið samtímis AGE-R húðumhirðutæki.
Forðist að nota önnur sterk exfolierandi efni eða retínól í sömu húðumhirðurrútínu ef húðin er viðkvæm. Notið sólarvörn daglega.
Innihaldslýsing – INCI
Aqua, Dipropylene Glycol, Glycerin, Butylene Glycol, 1,2-Hexanediol, Niacinamide, Sodium Polyacrylate, Ethylhexyl Palmitate, C12-14 Alketh-12, Hydrogenated Polydecene, Hydrolyzed Sponge, Ethylhexylglycerin, Adenosine, Caprylyl/Capryl Glucoside, Disodium EDTA, Panthenol, Lactobacillus Extracellular Vesicles, Campsis Grandiflora Flower Extract, Pueraria Lobata Root Extract, Pinus Palustris Leaf Extract, Oenothera Biennis (Evening Primrose) Flower Extract, Ulmus Davidiana Root Extract, Calcium Silicate, Sodium Silicate, Betaine Salicylate, Citric Acid, Gluconolactone.
Innihaldsefni geta breyst. Skoðið ávallt innihaldslýsingu á umbúðum vörunnar.
